ger.bloggar.is
Færsla 1Gunnlaugur Jónasson
Jæja þrátt fyrir litla eftirspurn ætlum við nú loks að stofna bloggsíðu og segja frá öllu því sem á fjörur okkar víkinganna rekur hér á nýlendunni.Ferðalagið byrjaði eldsnemma morguns þann 6. janúar, og hryllti ferðalöngum við tilhugsunina um þröng flugvélasæti næstkomandi þrjá tíma. En sumir eru meiri heimsborgarar en aðrir, það er nú bara einu sinni þannig. Þessi títt umræddi heimsborgari kom einmitt upp í aldursforsetanum við innritun í Leifstöð. Þá stígur hann á stokk og biður um sæti við neyðarútgang í þeirri trú að þá yrði fótapláss meira. Á meðan við þeir tveir yngri litu aðdáunaraugum á Rögnvald gerðum við okkur ekki grein fyrir því að hefðum í raun keypt köttinn í sekknum því það eina sem við fengum var jafn mikið fótapláss og sótsvartur almúginn en bara meiri ábyrgðartilfinningu á herðar okkar. Þegar til Kaupmannahafnar var komið var gist á móteli sem kallast Sleep in Heaven (Hótel Himnaríki upp á íslenskuna). Þar gistum við í 5 fermetra herbergi með þrem kojum og í húsnæði sem var að því er virtist gömul hippakommúna. Þar var gist í tvær nætur áður en haldið var til Ikast.
Hér er búið að vera mjög gaman flestir eru mjög skemmtilegir og allir elska okkur og dýrka. Ætla leyfa hinum að skrifa eitthvað meira
Gunnlaugur “Guns” Jörgensen